Sjómannadagsráð á og rekur Hrafnistu í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði, Happdrætti DAS orlofssvæðið að Hraunborgum Grímsnesi, Naustavör ehf. og Laugarásbíó sem leigt er til Kvikmyndahússins ehf.
Jafnframt er Sjómannadagsráð aðili að fulltrúaráði hjúkrunarheimilanna Skjóls og Eirar.
Enn fremur annast Sjómannadagsráð sjálft hátíðarhöldin á sjómannadaginn í Reykjavík sem aðili að Hátíð hafsins og gefur út Sjómannadagsblaðið.
Sjómannadagsráð árið 2011