Leitarvél
 
Sjómannadagsblaðið


Smellið á myndina til að ná í blaðið á pdf formi.

ÍbúðaþjónustaHrafnistu

 
Íbúðaþjónustan er sjálfstæð deild innan Hrafnistu sem heldur utan um alla þjónustu sem Hrafnista veitir íbúum í þjónustu- og öryggisíbúðunum. Markmiðið er að veita samhæfða og góða þjónustu við íbúana, sem hentar hverjum og einum. Við viljum aðstoða fólk að viðhalda heilsu og virkni eftir flutning og hjálpa fólki að finna sig heima á nýjum stað.
 

Þjónustufulltrúi íbúðaþjónustu Hrafnistu er Jenný Gunnarsdóttir og er hægt að leita til hennar í síma 664 -9560 frá kl. 8.00 til 16.00 alla virka daga. Einnig eru viðtalstímar á föstudögum kl. 9:00 -12:00 á 2. hæð þjónustumiðstöðvar. Þjónustufulltrúinn tekur á móti öllum óskum um þjónustu, veitir almennar upplýsingar og leiðbeinir íbúum eftir föngum.
jenny_gunnarsdottir 

 
Í neyðartilfellum utan hefðbundins skrifstofutíma er hægt að ná sambandi við vaktmann í síma 664- 9476.
 
Mötuneyti er staðsett á 1. hæð í þjónustumiðstöðinni sími: 512-7400.   Þar er hægt að kaupa hádegismat og síðdegiskaffi. Mat um helgar og á kvöldin er hægt að fá sendan heim frá Hrafnistu. Tekið er við pöntunum í síma 585 9575. 
 

Hádegismatur:
700 kr.
Kvöldmatur:
350 kr.
Kaffi:
350 kr.
Stakur matarmiði:
350 kr.
Verð fyrir heimsendingu:
150 kr.

 
Húsvörður er Sigþór Guðmundsson og hann sér um allt viðhald sameignar og á fastabúnaði íbúða. Óskum um þjónustu húsvarðar skal komið á framfæri við þjónustufulltrúa sem kemur skilaboðum áleiðis. Ef íbúar þurfa aðstoð við að hengja upp myndir, setja saman húsgögn eða gera við rafmagnstæki, sem eru ekki hluti af fastabúnaði, þá bendir þjónustufulltrúi á iðnaðarmenn.
 
Öryggisvöktun er innifalin í öryggisíbúðunum. Þjónustufulltrúi afhendir íbúum þráðlausa öryggishnappa þegar þeir flytja inn.
 
Sjúkraþjálfun er í boði fyrir íbúa þjónustu- og öryggisíbúða gegn tilvísun frá lækni. Síminn er 531-4015.
 
Sundlaug og heitir pottar  eru í þjónustumiðstöð. Sími sundlaugar er 531-4015
 
Hárgreiðslustofa er á 1. hæð þjónustumiðstöðvarinnar og stendur íbúum opin. Tímapantanir eru á staðnum og er greitt samkvæmt verðskrá. Opnunartími er þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga frá kl. 10:00 – 17:00. Tímapantanir í síma: 531-4016.
 
Fótaaðgerðastofa er í kjallara þjónustumiðstöðvar og stendur íbúum einnig til boða. Tímapantanir eru á staðnum og er greitt samkvæmt verðskrá. Opnunartími er þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 9:00 – 17:00 og á föstudögum frá kl. 9:00 – 12:00. Tímapantanir í síma: 531-4017.
 
Félagsmiðstöðin Boðinn er staðsett í þjónustumiðstöðinni. Íbúar hafa aðgang að allri dagskrá sem er í boði þar. Þjónustumiðstöðin er opin frá kl. 9:00 – 16:00 alla virka daga og er opin fólki á öllum aldri óháð félagsaðild. Dagskrá félagsheimilisins er auglýst á töflu í anddyri þjónustumiðstöðvarinnar. Sími : 531-4000/512-7400
 
Félagsleg heimaþjónusta er veitt frá Félagsþjónustu Kópavogs, sími 570-1500.
 
Heimahjúkrun er veitt frá þeirri heilsugæslustöð þar sem heimilislæknir viðkomandi er starfandi.

 


Sjómannadagsráð  Kt. 570269-7539   |  Hrafnistuheimilið við Brúnaveg | 585-9301 | asgeir@hrafnista.is