Sjómannadagsráð og dótturfélag þess, Naustavör ehf, byggja 95 þjónustu- og öryggisíbúðir við Boðaþing 22-24 í Kópavogi. Bygging fyrri áfanga (Boðaþing 24) með 48 íbúðum hófst sumarið 2009 er lokið og bygging seinni áfanga (Boðaþing 22) með 47 íbúðum er hafin.
Íbúðirnar eru fyrir 60 ára og eldri. Lögð er áhersla á gott aðgengi, þægilegt umhverfi og nálægð við þjónustu. Þannig geta íbúar búið sem lengst í sömu íbúð, með því að nýta sér fjölbreytta þjónustu Hrafnistu og Kópavogsbæjar í þjónustu-miðstöðinni Boðaþingi 9. Innangengt er úr íbúðunum í Boðann, sundlaugina og hjúkrunarheimili Hrafnistu í Kópavogi um tengigang, sem liggur undir götuna.
Íbúðirnar eru af sex mismunandi gerðum og stærðum.
Á jarðhæð eru sameiginlegt þvottahús með þvottavélum og þurrkurum og rafskutlugeymsla með rafdrifnum hurða-opnunarbúnaði. Lóð og bílastæði verða fullfrágengin.
Sunnan við húsið er glæsilegur púttvöllur.
Nálægðin við íslenska náttúru og stórbrotið útsýni er eitt af aðalsmerkjum þjónustu- og öryggisíbúða í Boðaþingi 22-24. Boðaþing liggur á mörkum bæjar og sveitar og útivistarperlurnar við Elliðavatn og Heiðmörk eru í næsta nágrenni.
Útleiga og leiguverð: Íbúðirnar eru leiguíbúðir og leigðar út með eða án 30% afnotaréttar. Greiðsla fyrir afnotarétt er verðtryggð og verður endurgreidd við flutning (að frádreginni 2% árlegri fyrningu) samkvæmt nánari reglum þar um. Sjá verðskrá.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Sjómannadagsráðs alla virka daga milli 9-16 í síma 585-9301/585-9302 eða sendið tölvupóst á asgeir.ingvason@hrafnista.is eða jona.karlsdottir@hrafnista.is
Hægt er að panta tíma fyrir skoðun íbúða á sama stað. Auk þess bendum við á heimasíðuna www.hrafnista.is og síma 585-9500.