Mötuneyti er staðsett á 1. hæð Hrafnistu. Þar er hægt að kaupa morgunmat, hádegismat og síðdegiskaffi. Panta þarf mat fyrir kl. 10:00 að morgni í síma 585 9575.
Húsvörður er Víglundur Sívertsen og hann sér um allt viðhald sameignar og á fastabúnaði íbúða. S: 693-9509.
Öryggisvöktun er hægt að sækja um hjá þjónustufulltrúa t.d. öryggishnappa sem eru tengdir við síma vakthafandi hjúkrunarfræðings allan sólarhringinn.
DAS-klúbburinn er starfræktur fyrir íbúa þjónustu- og öryggisíbúða á lóðum Hrafnistu. Meðlimir í honum hafa aðgang að ýmiskonar íþróttastarfi, meðal annars hópleikfimi, vatnsleikfimi, boccia, gönguklúbbi og ýmsu fleiru. Auk þess hafa meðlimir aðgang að vinnustofu á Hrafnistu á opnunartíma og þar er hægt að leggja stund á margvíslegt handverk undir handleiðslu leiðbeinanda eða bara nýta sér aðstöðuna. DAS-klúbbsfélagar fá afslátt af skemmtunum á vegum Hrafnistu eins og Haustfagnaði og Þorrablóti og veglega afslætti hjá völdum fyrirtækjum í bænum. Gjaldið fyrir DAS-klúbbinn er 900.- kr. á mánuði.
Opið félagsstarf er fjölbreytt og stendur öllum til boða að taka þátt. Fastir liðir eru meðal annars morgunstund, helgistundir, bingó, böll og söngur. Dagskrá félagsstarfsins er auglýst á auglýsingatöflum heimilisins.
Hjúkrunarfræðingar Hrafnistu eru með viðtalstíma einu sinni í viku. Þar er t.d. hægt að fá skipt á sárum, mæla blóðþrýsting, fá ráðgjöf og fleira.
Sjúkraþjálfun er í boði fyrir íbúa þjónustu- og öryggisíbúða gegn tilvísun frá lækni. Síminn er 585-3080.
Sundlaug og heitir pottar eru staðsett á endurhæfingardeildinni og stendur íbúum opin endurgjaldslaust. Boðið er upp á vatnsleikfimi tvisvar í viku. Sundlaugin er opin alla virka daga frá kl. 8:15. Sími sundlaugar er 585-3085.
Hárgreiðslustofa er á 1. hæð Hrafnistu og stendur íbúum opin. Stofan er opin alla virka daga frá kl. 8:00 – 14:00. Veitt er hárþjónusta bæði fyrir dömur og herra. Tímapantanir og nánari upplýsingar er í síma 585-3172. Netfang: gudhar@mmedia.is.
Fótaaðgerðastofa og snyrtistofa er í kjallara Hrafnistu og stendur íbúum einnig til boða. Tímapantanir í síma: 585-3171. Opnunartími er þriðju-miðviku- og fimmtudaga frá kl. 10- 13:00.
Félagsleg heimaþjónusta er veitt frá Félagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar. Sótt er um í síma 585-5700.
Heimahjúkrun er veitt frá þeirri heilsugæslustöð þar sem heimilislæknir viðkomandi er starfandi.
Prestþjónusta er veitt frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Haldnar eru helgistundir í menningarsal á fimmtudögum.
Bankaþjónusta er í höndum Íslandsbanka sem er með bankaútibú og þar er einnig hraðbanki á 1. hæð. Opnunartími: Þriðjudaga og föstudaga frá kl. 9:30 – 12:00.
Sími: 585-3203 .
Verslun er á 1. hæð Hrafnistu. Þar er hægt að nálgast ýmsar nauðsynja- og gjafavörur.
Þvottur á líni er mögulegur en þá þarf að merkja fötin með númeri frá saumastofu Hrafnistu til að fyrirbyggja að þvotturinn tapist. Íbúar koma sjálfir með þvottinn í þvottahúsið.
Saumastofa sem sinnir minniháttar fataviðgerðum er staðsett í kjallara Hrafnistu. Íbúar sem vilja senda föt í viðgerð fara sjálfir með fatnað á saumastofuna. Opið er frá kl. 11:00 – 12:00 á virkum dögum.