Íbúðaþjónusta
Íbúðaþjónustan er sjálfstæð deild innan Hrafnistu sem heldur utan um alla þjónustu sem Hrafnista veitir íbúum í þjónustu- og öryggisíbúðunum. Markmiðið er að veita samhæfða og góða þjónustu við íbúana, sem hentar hverjum og einum. Við viljum aðstoða fólk að viðhalda heilsu og virkni eftir flutning og hjálpa fólki að finna sig heima á nýjum stað.

Þjónustufulltrúi íbúðaþjónustu Hrafnistu er Jenný Gunnarsdóttir og er hægt að leita til hennar í síma 664 -9560 frá kl. 8.00 til 16.00 alla virka daga. Einnig eru viðtalstímar á þriðjudögum frá kl. 9:00 -12:00. Þjónustufulltrúinn tekur á móti öllum óskum um þjónustu, veitir almennar upplýsingar og leiðbeinir íbúum eftir föngum.
jenny_gunnarsdottir 

Skrifstofa þjónustufulltrúa er á 1. hæð D-gangi
Í neyðartilfellum utan hefðbundins skrifstofutíma er hægt að ná sambandi við vaktmann í síma 693-9575 
 
Matsalur er við aðalanddyri Hrafnistu. Þar er hægt að kaupa morgunmat, hádegismat og síðdegiskaffi. Panta þarf mat fyrir kl. 10:00 að morgni í síma 585 9575.

Húsvörður  er Víglundur Sívertsen og hann sér um allt viðhald sameignar og á fastabúnaði íbúða. S: 693-9509.

Öryggisvöktun
er hægt að sækja um hjá þjónustufulltrúa t.d. öryggishnappa sem eru tengdir við síma vakthafandi hjúkrunarfræðings allan sólarhringinn. 

DAS-klúbburinn er starfræktur fyrir íbúa þjónustu- og öryggisíbúða á lóðum Hrafnistu. Meðlimir í honum hafa aðgang að ýmiskonar íþróttastarfi, meðal annars hópleikfimi, vatnsleikfimi, boccia, gönguklúbbi og ýmsu fleiru. Auk þess hafa meðlimir aðgang að vinnustofu á Hrafnistu á opnunartíma og þar er hægt að leggja stund á margvíslegt handverk undir handleiðslu leiðbeinanda eða bara nýta sér aðstöðuna. DAS-klúbbsfélagar fá afslátt af skemmtunum á vegum Hrafnistu eins og Haustfagnaði og Þorrablóti og veglega afslætti hjá völdum fyrirtækjum í bænum. Gjaldið fyrir DAS-klúbbinn er 900 kr á mánuði.

Opið félagsstarf  er fjölbreytt og stendur öllum til boða að taka þátt. Fastir liðir eru meðal annars morgunstund, helgistundir, bingó, böll og söngur. Dagskrá  félagsstarfsins er auglýst á auglýsingatöflum heimilisins.

Hjúkrunarfræðingar Hrafnistu eru með viðtalstíma einu sinni í viku. Þar er t.d. hægt að fá skipt á sárum, mæla blóðþrýsting, fá ráðgjöf og fleira.

 
Sjúkraþjálfun er í boði fyrir íbúa þjónustu- og öryggisíbúða gegn tilvísun frá lækni. Síminn er 585-9382. Boðið er upp á hópþjálfun tvisvar í viku í tækja- og leikfimissal. Hægt er að skrá þátttöku í síma 585-9381.
 
Sundlaug, gufubað og heitir pottar eru staðsettir á endurhæfingardeildinni og er aðgangur ókeypis fyrir íbúa. Sundlaugin er opin frá mánudegi til fimmtudags frá kl. 8:00 – 11:15. Gufubaðið er opið mánudaga til miðvikudaga frá kl. 8:00 – 11:15. Vatnsleikfimi er kennd mánudaga til fimmtudaga kl. 10:30 – 11:00.

Hárgreiðslustofa
er á 2. hæð í anddyri Hrafnistu og stendur íbúum opin. Stofan er opin alla virka daga frá kl. 10:00 – 16:00. Veitt er hárþjónusta bæði fyrir dömur og herra. Tímapantanir og nánari upplýsingar er í síma 585-9472.
 
Fótaaðgerðastofa og snyrtistofa er á 2. hæð í anddyri Hrafnistu og stendur íbúum einnig til boða. Tímapantanir í síma: 585-9471. Opnunartími er mánudagar til fimmtudaga frá kl. 09- 16:00.

Félagsleg heimaþjónusta
er veitt frá þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis. Sótt er um í síma 411 – 1500.
 
Heimahjúkrun er sinnt frá heilsugæslustöðinni í Glæsibæ. Síminn er 599-1300.
 
Prestþjónusta  Sr. Svanhildur Blöndal er starfandi prestur á Hrafnistu. Hún er með aðsetur á 4. hæð við hlið samkomusalarins Helgafells. Viðtalstímar eru eftir samkomulagi í síma 693-9588 eða senda tölvupóst á svanhildur.blondal@hrafnista.is
 
Bankaþjónusta er í höndum Landsbanka sem er með bankaútibú á 2. hæð í anddyrinu og þar er einnig hraðbanki. Opnunartími: Miðvikudaga og föstudaga frá kl. 10:00 – 12:00.

Verslun
 er í anddyri Hrafnistu á 2. hæð. Þar er hægt að nálgast ýmsar vörur.
 
ATH: Íbúar við Jökulgrunn og Kleppsveg 62 hafa einnig aðgang að íbúðaþjónustu Hrafnistu í Reykjavík. 

Verðskrá fyrir þjónustu á vegum Hrafnistu fyrir þjónustu og öryggisíbúðir.  Gildir frá 1. febrúar 2012
                                                                                                                                                          

 
 
 
 

 
  

                                               

 
 
 
Boðaþing 22-24

Hraunvangur 1-3

Brúnavegur 9

Hraunborgir

Minningarkort



Sjómannadagsráð | Kt. 570269-2679 | Hrafnistuheimilið við Brúnaveg | 585-9301 |