Brúnavegur 9 Reykjavík

hrafnista---brunavegur-138Við hlið Hrafnistu í Reykjavík stendur fjölbýlishús með 24 þjónustu- og öryggisíbúðum. Húsið stendur á fallegum stað og víða er fagurt útsýni út á sjóinn. Íbúðirnar er fyrir 60 ára og eldri og byggðar með þarfir eldri borgara í huga. Hugsunin er að íbúar geti búið sem lengst í sömu íbúð, með því að nýta sér þá aðstöðu sem er til staðar auk þess að hafa aðgang að fjölbreyttri þjónustu á vegum Hrafnistu.




Innangengt er úr íbúðunum yfir á Hrafnistu í gegnum tengigang. Á Brúnavegi eru 20 tveggjaherbergja íbúðir og 4 stúdíóíbúðir rúmgóðar og bjartar. Parket er á gólfum nema á baði er öryggisgólfdúkur. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Innfelld halogenlýsing er í loftum og svalir eru yfirbyggðar. Í sameign er sameiginlegt þvottahús með þurrkara og þvottavél.




Útleiga og leiguverð: Íbúðirnar eru leiguíbúðir. Við gerð samnings er greitt tryggingarfé sem samsvarar þriggja mánaða leigu. Við slit leigusamnings er tryggingarfé endurgreitt með verðtryggingu en án vaxta skv. nánari reglum. Sjá meðfylgjandi verðskrá.




Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Sjómannadagsráðs alla virka daga milli 9-16 í síma 585-9301/585-9302 eða sendið tölvupóst á asgeir.ingvason@hrafnista.is eða jona.karlsdottir@hrafnista.is.




Hægt er að panta tíma fyrir skoðun íbúða á sama stað.




Auk þess bendum við á heimasíðuna www.hrafnista.is. og síma 585-9500.



Boðaþing 22-24

Hraunvangur 1-3

Brúnavegur 9

Hraunborgir

Minningarkort



Sjómannadagsráð | Kt. 570269-2679 | Hrafnistuheimilið við Brúnaveg | 585-9301 |