Þjónustu- og öryggisíbúðir

Sjómannadagsráð og Naustavör bjóða upp á leiguíbúða í fjölbýlishúsum í Hafnarfirði Kópavogi og Reykjavík. Íbúðirnar eru margar hverjar mjög nýlegar og vandaðar að öllu leyti. Lögð er áhersla á að mæta margvíslegum þörfum eldri borgara.

 

Íbúðirnar eru ætlaðar 60 ára og eldri og í boði fjórar mismunandi stærðir. Íbúðirnar eru sambærilegar íbúðum á almennum markaði en njóta góðs af nálægð við Hrafnistu sem hefur ýmsa möguleika í för með sér.

Íbúar geta notið samvista við Hrafnistu og keypt þaðan margs konar þjónustu og afþreyingu eins og mat, hársnyrtingu, leikhúsferðir,handavinnu, þorrablót og kvöldvökur. Einnig geta íbúar keypt aðgang að ýmis konar hreyfingu svo sem leikfimi , sund og boccia.

 

Nánari upplýsingar:

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Sjómannadagsráðs alla virka daga milli 9-16 í síma 585-9301/585-9302 eða sendið tölvupóst á asgeir.ingvason@hrafnista.is eða jona.karlsdottir@hrafnista.is.

Hægt er að panta tíma fyrir skoðun íbúða á sama stað. Auk þess bendum við á heimasíðuna www.hrafnista.is. og síma 585-9500.

Leiguverð (smellið á tenglana hér að neðan):

Leiguíbúðir við Boðaþing 22 - 24, Kópavogi
Leiguíbúðir við Hraunvang 1-3, Hafnafirði

Leiguíbúðir við Brúnaveg 9, Reykjavík

Boðaþing 22-24

Hraunvangur 1-3

Brúnavegur 9

Hraunborgir

Minningarkort



Sjómannadagsráð | Kt. 570269-2679 | Hrafnistuheimilið við Brúnaveg | 585-9301 |