Naustavör ehf. er einkahlutafélag og var stofnað 8. febrúar 2001. Sjómannadagsráð í Reykjavík og Hafnarfirði er eigandi Naustavarar ehf. (100 %).
Naustavör ehf. er eigandi og leigir út þjónustu- og öryggisíbúðir fyrir 60 ára og eldri. Íbúðirnar eru í Hraunvangi 1-3 (64 íbúðir), Brúnavegi 9 (24 íbúðir) og í Boðaþingi 24 (48 íbúðir). Ennfremur eru í byggingu 47 íbúðir í Boðaþingi 22.
Hraunvangur 1-3 er við Hrafnistu í Hafarfirði, Brúnavegur 9 er við Hrafnistu í Reykjavík og Boðaþing 22-24 er við Hrafnistu í Kópavogi og þjónustumiðstöðina Boðann.
Í stjórn Naustavarar ehf. eru: Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarformaður, Hálfdan Henrýsson meðstjórnandi og Guðjón Ármann Einarsson meðstjórnandi.
Skrifstofa Naustavarar er í Hrafnistu v/ Brúnaveg, 104 Reykjavík. Afgreiðslutími er á virkum dögum frá kl. 8-16.
| Forstjóri: Ásgeir S. Ingvason,
Sími: 585-9301,fax 585-9308, Netfang: asgeir@sjomannadagsrad.is og asgeiringvason@hrafnista.is |
![]() |
| Fulltrúi forstjóra: Jóna Karlsdóttir
Sími: 585-9302 Netfang: jona.karlsdottir@hrafnista.is |
![]() |
Sjómannadagsráð | Kt. 570269-2679 | Hrafnistuheimilið við Brúnaveg | 585-9301 |